ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.0° 5m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

EF ÉG VÆRI SEÐLABANKASTJÓRI ...

20:32 › 2. febrúar 2009


... þá mundi ég segja kurteislega af mér ekki seinna en núna.

Ef ég væri Seðlabankastjóri og horfði upp á að nær öll þjóðin vildi losna við mig, að fólk hefði farið út á götur til að heimta mig brott, að erlendis væri hlegið að mér og nærvera mín væri talin koma í veg fyrir að Ísland gæti öðlast nýtt traust í peningamálum, þá mundi ég segja af mér.

Og ég mundi ekki hafa geð í mér til að fara fram á háan starfslokasamning af neinu tagi.

Ég mundi minnast Arnolds gamla Geulincx sem sagði: "Ubi nihil vales, ibi nihil velis."

"Þar sem maður er einskis metinn, þar á maður ekki að óska neins."

Eða þar um bil.






ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?