Ég hef ekki heyrt neitt minnst á það, en hlýtur ekki ný ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur að taka til endurskoðunar þá nefnd sem nú er tiltölulega nýbyrjuð að rannsaka bankahrunið?
Undir forystu Páls Hreinssonar.
Út af fyrir sig treysti ég alveg þeim þremur einstaklingum sem í nefndinni sitja, og það hvarflar ekki að mér að efast um að þau vilji vinna störf sín af samviskusemi.
En til að taka af öll tvímæli, á þessi nefnd samt að lúta forystu útlendings sem alls engra hagsmuna getur haft að gæta á Íslandi.
Hér á Íslandi er enginn sem getur talist fullkomlega óháður stjórnmálaflokkum eða öðrum valdaklíkum, eða þá útrásarfyrirtækjum og bönkunum.
Blogg
VERÐUR NÚ EKKI SKIPAÐUR ÚTLENDINGUR YFIR RANNSÓKNARNEFNDINA?
14:27 › 1. febrúar 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
