ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.0° 5m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

TIL HAMINGJU ÍSLAND?

16:08 › 1. febrúar 2009


Ja ... ég vona það alla vega svo sannarlega. Og það er vissulega nýlunda að leyfa sér að vona eitthvað jákvætt stundarkorn.

Stjórnin mun náttúrlega ekki vinna nein kraftaverk, það er augljóst. Til þess hefur hún hvorki mikinn tíma né of mikið svigrúm, tala nú ekki um eftir hinar dularfullu fléttur Framsóknarflokksins.

VG eiga náttúrlega skilið að setjst í ríkisstjórn og ég vona að þeim gangi vel. Alveg sama hvað gert hefur verið lítið úr málflutningi þeirra undanfarin ár, þeir kallaðir neikvæðir og fúlir og gamaldags - þá verður ekki framhjá því horft að ef stefnu þeirra hefði gætt meira í landstjórninni, þá er næsta víst að ekki hefði orðið þetta hrun.

Og því eiga VG betra skilið en þær heiftúðugu árásir sem þeir sæta nú - sumir eru meira að segja farnir að kalla þá "komma" aftur!

Ég vona að nýja stjórnin hafi einhver ráð í pokahorninu sem gætu byrjað að snúa okkur af niðurleiðinni, en sá besti árangur sem hún gæti þó hugsanlega náð væri að kveikja að nýju einhvern svolítinn vott að vísi að bjartsýni í þessu landi.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?