Nú þegar Sjálfstæðisflokkurinn hverfur úr ríkisstjórn eftir öll þessi ár verður hann að sýna yfirvegun og hógværð.
Það voru ekki samantekin ráð vondra manna sem komu flokknum úr ríkisstjórn.
Það var einfaldlega komið nóg af Sjálfstæðisflokknum í bili.
Kappnóg.
Enda hefur nýfrjálshyggjustefna hans beðið algjört skipbrot um víða veröld, þótt því miður hafi farið alveg sérstaklega illa hér.
Það býr mikil orka í Sjálfstæðisflokknum, en flokksmenn eiga að nýta þá orku til að hugsa sitt ráð upp á nýtt, alveg frá grunni, en ekki hnotubítast út af því að hafa misst valdastólana.
Það áttu þeir augljóslega skilið.
Lítið í kringum ykkur í samfélaginu.
Blogg
RÁÐ TIL SJÁLFSTÆÐISMANNA
09:23 › 1. febrúar 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
