Rétt áðan sá ég bíl aka í rólegheitum austur Austurstrætið.
Hann kom eftir Pósthússtræti frá Austurvelli, beygði inn í Austurstrætið og ók rólega áfram.
Það sem meira var, þetta var leigubíll, og hann gaf sér tíma til að setja út farþega.
Keyrði svo áfram í makindum.
Ef einhver skyldi ekki átta sig á hvað var merkilegt við þetta, þá hefur Austurstrætið verið einstefnugata í vestur svo lengi sem elstu menn muna.
Að leigubílstjóri skuli ekki vita það er ótrúlegt.
Það lá við að ég hlypi til og tæki niður númerið hans; hlaut ekki svona bílstjóri að vera hættulegur í umferðinni?
Af tilviljun slapp hann við að fá bíl á móti sér áður en hann náði að gatnamótunum við Lækjargötu.
Ég átti eiginlega helst von á því að hann héldi áfram upp Bankastrætið.
Hann gerði það nú að vísu ekki.
En þetta var undarlega absúrd og óþægileg sjón.
Ekki bara af því svona bílstjóri er auðvitað stórvarasamur, heldur var líka eitthvað óþægilegt við að sjá þarna gerast það sem ekki átti að geta gerst.
Blogg
VARASAMUR LEIGUBÍLSTJÓRI
09:05 › 9. nóvember 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
