Sveinn Valfells hafði alveg rétt fyrir sér í Silfri Egils í gær.
Að Hæstiréttur Íslands skuli hafa snúið við dómi Héraðsdóms í máli Vilhjálms Bjarnasonar gegn Glitni út af verðinu sem Bjarni Ármannsson fékk fyrir hlutabréfin sín er vitanlega stóralvarlegt mál.
Ekki er ég lögfræðingur og þaðan af síður "lagatæknir" eins og nú tíðkast að kalla íslenska lögfræðinga.
En bæði ég og Hæstiréttur vitum þó að það var í þessu tilfelli gjörsamlega gegn anda laganna um að ekki megi mismuna hluthöfum, að þeim skuli einmitt hafa verið mismunað mjög í þessu tilviki, Bjarna í hag.
Og ef æðsti dómstóll Íslands dæmir þvert á það sem er sanngjarnt og réttlátt, og líka beinlínis gegn því sem lögunum var ætlað að ná fram, þá er vissulega - eins og Sveinn sagði - eitthvað mikið að.
Annað hvort eru lögin sjálf stórlega gölluð, eða þær lagatúlkanir sem hér hafa tíðkast - kannski alla tíð.
Eða það er einfaldlega Hæstiréttur sjálfur sem er gallaður.
Og hvað er hægt að gera í því?
Blogg
ER ÞÁ HÆSTIRÉTTUR GALLAÐUR?
08:07 › 9. nóvember 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
