Ein af kröfum útifundanna á Austurvelli síðasta vetur og búsáhaldabyltingarinnar var um nýja stjórnarskrá sem sett yrði án afskipta hinna venjulegu stjórnmálamanna, af sérstöku stjórnlagaþingi.
Ég var orðinn smeykur um að í umróti hvunndagsins væri sú krafa hér um bil að gleymast, en nú hefur Jóhanna Sigurðardóttir lagt fram frumvarp um stjórnlagaþingið og samkvæmt frumvarpinu á það að koma saman þann 17. júní næstkomandi.
Þegar ég gúglaði orðið "stjórnlagaþing" kom fyrst upp ræða sem Jóhanna hélt um nauðsyn stjórnlagaþings, en sú ræða var haldin árið 1996.
Fyrir 13 árum.
Betur að þá hefði verið farið að tillögum hennar (og ýmissa fleiri, náttúrlega).
Jóhanna hefur mætt miklum ólgusjó síðan hún varð forsætisráðherra. Hún er augljóslega hvergi nærri jafn vinsæl og óumdeild nú og hún var áður fyrr.
Enda fer henni satt að segja misjafnlega að vera "kallinn í brúnni".
En hvað sem daglegu stjórnmálavafstri líður, þá getur enginn þrætt fyrir að Jóhanna er hugsjónamaður og baráttukona mikil.
Og ef hún einbeitir sér að því að koma hugmyndum um stjórnlagaþing og nýja stjórnarskrá í gegn, þannig að allir Íslendingar hafi sóma að, þá verður orðstír hennar góður þegar frá líður.
Blogg
STJÓRNLAGAÞINGIÐ
20:11 › 6. nóvember 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
