AUGLYSENDUR: STYRKIÐ FJÖLMIÐLA, EKKI RUSLATUNNUR! HINSTA KVEÐJA

30. nóvember 2009

MAÐURINN OG HATTURINN

Trésmiðja


Þetta hér er fín grein hjá Teiti Atlasyni.

Það er alveg hversu ófullkomin núverandi ríkisstjórn kann að vera, það er alveg sama hvaða ytri orsakir má finna sem áttu þátt í hruninu, það er alveg sama hve mikið klúður okkur kann að virðast Icesave-niðurstaðan, það má þó aldrei gleymast hvar hin raunverulega sök liggur.

Hjá Sjálfstæðisflokknum.

Og hvergi annars staðar.

Og meðan ekki verður vart neinnar iðrunar úr þeirri átt, né heiðarlegs uppgjörs við fortíðina, þá er það í sjálfu sér verðugt markmið að halda flokknum, og útseli hans Framsóknarflokknum, frá völdum.

Og beina sífellt kastljósi að honum, svo honum takist ekki að fela sig í skuggunum eða þurrka sjálfan sig út af ljósmyndum af hruninu.

Í því tilfelli sem Teitur nefnir var maðurinn náttúrlega ekki þurrkaður út sjálfviljugur, af sjálfum sér og vinum sínum, eins og raunin er um Kjartan Gunnarsson og félaga, heldur voru óvinir hans að verki.

Sagan sem Teitur segir virðist nefnilega dregin af örlögum Vladimírs Clementis, sem Milan Kundera sagði í Bók hláturs og gleymsku.

Clementis var einn af forsvaramönnum kommúnista í Tékkóslóvakíu á árunum fyrir seinni heimsstyrjöld og meðan á henni stóð. Eftir stríðið var hann einn helsti forsprakki valdaráns kommúnista með stuðningi Stalíns árið 1948. Þá varð Klement Gottwald forseti.

Svona leit Clementis út, hattlaus.



Clementis var um tíma utanríkisráðherra en síðan varð hann undir í valdabaráttu innan kommúnistaflokksins Tékkóslóvakíu. Það sama gerðist, fyrr eða síðar, í flestum kommúnistaríkjunum. Clementis var sakaður um "borgaralega þjóðernisstefnu" og þátttöku í samsæri Trotskíista, zíonista og Títóista!

Hann var hengdur 1952 og flestallar heimildir um hann voru síðan þurrkaðar út. Myndin fræga sýnir hann fylgjast með Gottwald, sigurvegara valdabaráttunnar, flytja ræðu.

Þetta er myndin:

ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.