30. nóvember 2009
AFGREIÐUM NÚ ICESAVE!
Trésmiðja
Ég get borið fulla virðingu fyrir þeim sem eru á móti Icesave-samningnum.
En ég held að þrennt sé þó alveg morgunljóst.
Í fyrsta lagi að hvernig svo sem upphafleg réttarstaða Íslands kann að hafa verið, þá skuldbatt ríkisstjórn Geirs Haarde okkur í málinu.
Í öðru lagi að hér og nú sé ekki hægt að ná betri samningi en þeim sem nú liggur fyrir. Og það sé stórkostlega áhættusamt að þráast við að reyna það.
Sömuleiðis, að þó ég viti nú ekki ýkja margt um alþjóðastjórnmál og samningatækni, þá sýnist mér nokkuð augljóst að þegar um hægist og kreppunni á Vesturlöndum linnir, þá verði mun auðveldara að taka upp aftur í ró og næði þau atriði samningsins sem kunna að reynast okkur erfiðust.
Í þriðja og síðasta lagi, þá virðist mér málþóf Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins á Alþingi kjánalegt og niðurlægjandi fyrir Alþingi. Það er gott og blessað að ræða mál í þaula, en það er löngu búið að ræða allar hliðar á þessu máli.
Kominn tími til að afgreiða það.

















