ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.2° 11m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

HEIMSKULEGASTA ÞJÓÐIN?

11:04 › 3. nóvember 2009


Eigum við verstu bankamenn í heimi? Það segja sumir. Aðrir kjósa frekar að trúa því að við eigum verstu kaupsýslumenn í heimi.

Enn aðrir álíta að bankamennirnir og kaupsýslumennirnir hafi bara teygt sig eins langt og misheppnað eftirlitskerfi leyfði, og nær væri að segja að við ættum verstu stjórnmála- og embættismenn í heimi.

Sumir gætu jafnvel fabúlerað um að Íslendingar í heild væru einhver versta þjóð í heimi - svo mjög sem hún bruðlaði á "góðæristímanum".

En ég get huggað fólk með því að engin af þessum nafnbótum á í reynd rétt á sér.

Nafnbæturnar verstu bankamennirnir, verstu kaupsýslumennirnir, verstu stjórnmálamennirnir og verstu embættismennirnir hljóta allar að falla í skaut eyríkisins Nauru á Kyrrahafi.

Um hörmuleg örlög Nauru er fjallað í nýjasta hefti SKAKKA TURNSINS, í sérkafla í blaðinu um "það allra versta" á ýmsum sviðum.

Íbúar á Nauru voru um skeið ein ríkasta þjóð í heimi af því þar voru dýrmætar fosfat-námur.

Þær voru þó takmörkuð auðlind og íbúarnir einsettu sér að fara vel með peningana, og safna þeim í digran sjóð sem gæti dugað þeim vel þegar fosfatið væri búið.

En þrátt fyrir góð áform klúðruðu Nauru-búar sínum málum svo hraustlega að jafnvel við Íslendingar komumst ekki í hálfkvisti við það.

Meðal þess sem kemur fram í SKAKKA TURNINUM að Nauru-menn hafi sólundað fé sínu í var söngleikur á Broadway sem var víst einhver sá allra misheppnaðasti sem þar hefur sést.

Og aðrar fjárfestingar Nauru-manna voru eftir því.

Við erum sem mestu mannvitsbrekkur í samanburði við aumingja Nauru-menn.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.