ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 4.0° 7m/s WSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

HRINGIR KRINGUM JÖRÐINA

22:02 › 27. nóvember 2009

 Stundum verður maður að leyfa einhverju öðru en hruninu að leika um hugann.

Einhverjir sem kalla sig "íslenska nörda" hafa nú opnað vefsíðu sem heitir Verbúð. Hér má sjá hana.

Og þeir "nördarnir" birta á síðunni skemmtilegt myndband af Youtube þar sem maður nokkur hefur tekið sér fyrir hendur að kanna hvernig Jörðin liti út ef hún hefði hringi kringum sig eins og Satúrnus.

Hinir gasrisarnir í sólkerfinu - Júpíter, Úranus og Neptúnus - hafa reyndar hringi líka, en þeir eru ekki nærri eins áberandi og hringir Satúrnusar.

Það er gaman að ímynda sér hvernig svona hringir hefðu haft áhrif á hugmyndaheim mannsins.





ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.