Ég var hjartanlega sammála Þórólfi Matthíassyni prófessor sem sagði í sjónvarpsfréttum RÚV í gærkvöldi að það skyti skökku við að ekki væru meiri álögur lagðar á sjávarútveginn eða hreyft við sjómannaafslættinum, nú þegar þyrfti að hækka skatta almennings.
Sjá hér.
Með fullri og djúpri virðingu fyrir sjómönnum - sjómannaafslátturinn kann að hafa átt rétt á sér einhvern tíma, en nú er hann tímaskekkja, ranglátur og ósanngjarn.
Og það á að afnema hann undireins.
Sjómenn ættu að sækja kjarabætur til útgerðarmanna ef þeir telja sig eiga rétt á þessum afslætti, frekar en sækja það til samfélagsins.
Sömuleiðis sýnist mér að álver og orkufyrirtæki fari furðu létt út úr skattahækkunum.
En það vakti líka athygli mína hvernig RÚV bjó um viðtalið við Þórólf prófessor. Bæði í inngangi fréttarinnar og "í fréttum var þetta helst" í lok fréttatímans var sagt fullum fetum að Þórólfur væri undrandi á því að ekki væri meira tekið af sjávarútveginum, í stað þess að "skattpína almenning".
Mér hnykkti satt að segja illa við þegar ég heyrði þetta. Og ég beið þess að heyra Þórólf útskýra hvernig hann túlkaði þessa hækkun skatta beinlínis sem "skattpíningu almennings".
Sér í lagi í ljósi þess að skattar hinna lægst launuðu munu að því er virðist lækka, en ekki hækka.
En ég heyrði Þórólf aldrei nota neitt í líkingu við svo sterk orð í viðtalinu. Hann talaði um hækkaða skatta á almenning, aldrei um skattpíningu.
Ekki að minnsta kosti í þeim bútum viðtalsins sem birtir voru.
Þar sem það er óneitanlega ansi mikill munur á því að "hækka skatta" og að "skattpína almenning", þá væri fróðlegt að vita hvort fréttastofan sjálf hafi túlkað orð Þórólfs með þessum hætti, og hvort hann er þá sammála þeirri túlkun, eða hvort hann lét þessi orð falla í viðtalinu þó þau hafi endað á klippiborði fréttastofunnar.
Orð Þórólfs prófessors hafa mér nefnilega oft þótt athyglisverð gegnum tíðina, svo mér þætti gott að vita hvort hann telur skattahækkanir núna beinlínis vera "skattpíningu".
Önnur frétt á RÚV sýnir að annar kunnur fræðimaður, Stefán Ólafsson, telur trauðla um "skattpíningu" að ræða.
Sjá hér.
"Skattpíning" er stórt orð. Það ætti ekki að nota af léttúð. Það ætti alla vega að vera á hreinu hver telur um skattpíningu að ræða, prófessorinn eða fréttastofan.
Blogg
SKATTPÍNING?
08:12 › 20. nóvember 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
