SKAKKI TURNINN, Síamstvíburi Sögunnar allrar, kemur auðvitað líka út í dag. Aðalgreinin fjallar um minnið. Það er ekki eins stabílt fyrirbæri og við viljum halda.
Vissuði til dæmis að innan skamms verður hægt að þurrka út óþægilegar minningar með lyfjagjöf?
Þá getum við gleymt hruninu eins og það leggur sig.
Sumir myndu náttúrlega segja að við séum þegar á góðri leið með að gleyma því. En það verður víst hægt að eyða því gjörsamlega úr minni okkar, ef við verðum dugleg að taka pillurnar okkar!
SKAKKI er annars troðfullur af öðru efni.
Meðal annars: Lönd sem heita eftir fólki. - Hvað hafa margir menn lifað á jörðinni frá upphafi? - Hver er ruglaðasti leikurinn á HM frá upphafi? - Dansandi lemúrar og önnur guðdómlega fín dýr á Madagaskar - Upphaf peninganna - Morðið á Kitty Genovese: Horfði fjöldi manns upp á það án þess að leggja henni lið? - 11 skelfilegir hlutir um bíómyndina Exorcist - Spádómshænan frá Leeds.
Og síðast en ekki síst:
Vísindamenn sem gert hafa tilraunir á sjálfum sér. Í nafni vísinda hafa menn lagst í gubbgufubað, gatað á sér hrygginn og kramið sigið niður í eldgíg Vesúvíusar og bakað sjálfan sig í ofni.
Forsíðan á SKAKKA er svona:
Blogg
VIÐ GETUM GLEYMT BÆÐI HRUNINU OG "HRUNINU"
14:08 › 19. nóvember 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
