Sagan öll er komin út, ásamt frænda sínum SKAKKA TURNINUM. Á forsíðu Sögunnar er grein um geðveikan oflátung sem varð keisari í Róm; það er sjálfur Neró.
Hann spilaði auðvitað ekki á fiðlu meðan Róm brann, en hann varð fyrstur Rómarkeisara til að ofsækja kristna menn, hann lét drepa mömmu sína og konuna sína og margan fíflskap annan drýgði hann.
Framan af stjórnartíð hans var hann hins vegar vinsæll af lágstéttum Rómar, enda reyndi hann að koma hjólum atvinnulífsins í gang eftir langa stöðnunartíð.
Meðal annars efnis í blaðinu er grein um hina róstusömu Afganistans. Það er eiginlega nauðsynlegur fróðleikur fyrir fólk á vorum dögum að vita eitthvað um þá sögu. Hún er mjög skilmerkilega rakin í blaðinu.
Auk þess er í Sögunni fjallað um nokkrar þeirra jólabóka sem út koma nú og fjalla um söguleg efni: Það eru Sagan, útgefin af JPV, Snorri eftir Óskar Guðmundsson, Berlínarblús eftir Ásgeir Guðmundsson, Orrustan um Spán eftir Antony Beevor, Ísland í aldanna rás: 18. öld, útgefin af JPV, og Stalín ungi eftir Simon Sebag Montefiore. Frá fleiri bókum verður sagt í næsta hefti.
Einnig eru í Sögunni greinar um sögulegar sápuóperur, hið dularfulla Frísland (eyju sem lengi var talið að væri í Atlantshafi nálægt Íslandi), og einstaklega merkilegan kúk sem víkingar skildu eftir sig á Englandi fyrir margt löngu.
Svo er að sjálfsögðu ein grein um Hitler. Að þessu fjöllum við um hvað sá herfilegi leiðtogi las sér til skemmtunar og fróðleiks.
Blogg
GEÐVEIKUR OFLÁTUNGUR Á VALDASTÓLI
12:26 › 19. nóvember 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
