ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 5.1° 8m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

AUÐMANNASKATTURINN

11:07 › 19. nóvember 2009


Í umræðu samfélagsins virðast furðu margir ganga út frá því sem sjálfsögðum hlut að auðmenn muni flýta sér úr landi til að losna við að borga hinn tímabundna auðmannaskatt sem ríkisstjórnin ætlar að setja á.

Er það virkilega svo?

Gleymum því ekki að auðmenn hafa grætt á tá og fingri síðustu árin. Það var hlaðið undir þá á allan hátt.

Og ég trúi því illa að þeir séu slík smámenni að þeir stökkvi strax burt með fé sitt ef þeim er ætlað að borga ögn meira til samfélagsins í 2-3 ár.

Til að leggja meðbræðrum sínum og -systrum lið í þrengingum þeirra.

Fólkinu sem byggði það samfélag sem gerði þeim kleift að auðgast.

Ef svo fer, þá höfum við ekkert við slíka auðmenn að gera.

Og það skal tekið fram að ég er hér ekki að vísa til útrásarvíkinga og annarra hrunverja, sem samkvæmt þessari frétt virðast vissulega á fullu að koma sér úr landi; þeir sem ekki eru þegar farnir.

Nei, ég á bara við venjulegt ríkt fólk á þessu landi.
 



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.