ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 5.1° 8m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

PEÐIÐ SEM Á AÐ FÓRNA

13:39 › 18. nóvember 2009


Er lítið í fréttum?

Allt í einu eru fjölmiðlar uppfullir af ýmsu sem stendur í nýrri bók Styrmis Gunnarssonar, en með fullri virðingu fyrir Styrmi, þá sé ég nú ekki að ennþá séu þar stór skúbb á ferðinni.

Þetta hér hefur til dæmis komið fram áður, og það fyrir nokkuð löngu.

Vissulega það samt merkilegt að fá að vita hvað Bretar hafa verið áhyggjufullir út af Icesave og stöðu Landsbankans strax í ágúst í fyrra. Sjá hér.

Hvers vegna ekki var þá brugðist betur og skjótar við hér á landi hlýtur að vera eitt af því sem hin margfræga rannsóknarnefnd Alþingis leggur mat á.

En af hverju sagt er frá því í fréttum þó Styrmir hugleiði eitthvað um hvort ráðherrar kunni að enda fyrir Landsdómi í kjölfar skýrslu rannsóknarnefndarinnar, það skil ég ekki alveg.

Annar hver bloggari landsins hefur þegar hugleitt þetta fram og til baka, ef mér skjöplast ekki.

Og hefur þó ekki verið fjallað um það í fréttatímum.

Líklega er þetta fyrst og fremst vel heppnuð markaðssetning hjá útgefanda Styrmis.

Sem fjölmiðlar hafa stokkið á í stað þess að afla sér sinna frétta sjálfir.

Það sem er í rauninni merkilegt við þessar hugleiðingar Styrmis er að hann er að marka vígvöllinn fyrir útkomu skýrslu rannsóknarnefndarinnar.

Með dyggri aðstoð Moggans sem slær hugleiðingum hans upp á forsíðu, eins og aldrei hafi nokkrum manni dottið annað eins í hug.

Styrmir hafði á sínum tíma bein í nefinu og hafði efasemdir um stefnu hins mikla og ástsæla leiðtoga í ýmsum málum, ekki síst sjávarútvegsmálum.

Hinn mikli og ástsæli leiðtogi svínbeygði þá Styrmi þar sem hann var veikastur fyrir.

Stoltir menn sem bíða ósigur fyrir sér minni mönnum bregðast stundum við með því að ganga til liðs við sigurvegarann af fádæma hollustu, allt að því ofstæki.

Aðeins þannig geta þeir afsakað ósigurinn fyrir sjálfum sér.

Þeir hafi tapað fyrir þeim allra besta. Það hlýtur bara að vera! Enginn annar en sá allra sterkasti hafi getað sigrað þá. En þá hljóti þeir líka eftirleiðis að þjóna honum.

Styrmir gerðist nú innmúraðastur og innvígðastur allra í hirð hins mikla og ástsæla leiðtoga.

Og þannig verður að skilja skrif hans nú.

Víst er það rétt að auðvitað verður hugleitt hvort Geir Haarde, Ingibjörg Sólrún og aðrir ráðherrar í ríkisstjórninni eigi að koma fyrir Landsdóm.

En í Kremlarfræðum hinna innmúruðu eru svoleiðis hugleiðingar fyrst og fremst þáttur í að leiða athyglina frá hinum mikla og ástsæla leiðtoga.

Og þætti hans í hruninu.

Styrmir ýtir Geir Haarde fram á sakamannabekk til að enginn taki eftir hinum mikla og ástsæla leiðtoga þar sem hann skaust úr Svörtuloftum Seðlabankans inn í skuggann á Mogganum.

Þetta er þáttur í þeirri söguskoðun, sem nú er löngu byrjað að búa til, að allt hafi verið í fínu lagi þangað til hinn mikli og ástsæli leiðtogi hætti sem forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins.

Geir Haarde hafi klúðrað öllu hinu góða starfi Davíðs.

Þetta sé allt honum að kenna!

Aumingja Geir Haarde á ekki sjö dagana sæla. Hann var vinur og fylgisveinn leiðtogans mikla í áratugi.

En lætur nú líðast að honum sé hiklaust fórnað á altari leiðtogans. Svo sem minnst kusk falli á hvítflibba leiðtogans í Íslandssögunni.

Og Geir virðist ætla að ganga á höggstokkinn jafn tryggur og trúr sem fyrr. Hann er peðið sem á að fórna svo kóngurinn sleppi úr klípunni.

Meira að segja upp úr miðjum september, þegar hernaðaráætlun Davíðsklíkunnar um að fórna Geir var löngu orðin ljós, þá fór Geir í viðtal við hinn norska Skavlan, og bar enn í bætifláka fyrir hinn mikla og ástsæla leiðtoga.

Þegar Skavlan spurði hneykslaður hvort það hefði ekki verið allt í lagi hjá okkur Íslendingum - fjármálaráðherrann dýralæknir, bankamálaráðherrann heimspekingur og Seðlabankastjórinn skáld! - þá greip vesalings Geir fram í og sagði með töluverðum þunga:

"Davíð Oddsson er fyrst og fremst mjög mikilhæfur lögfræðingur."

Æ, æ.





ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.