Ekkert veit ég um rekstur deCode né framtíðarhorfur þess fyrirtækis. Ég vona bara að starfsfólkið sem þar vinnur fái haldið störfum sínum.
En hraustlega þótti mér mælt þegar Kári Stefánsson sagðist í viðtali við útvarpið í morgun vilja leggja áherslu á að vandræði deCode mætti ekki kenna Davíð Oddssyni og Seðlabankanum, ekki Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, og heldur ekki Hreiðari Má eða Sigurði Einarssyni.
Vandræði fyrirtækisins væru sér að kenna.
Núna, þegar allir hrunverjar, útrásarvíkingar, bankamenn, stjórnmálamenn og embættismenn, keppast um að vísa allri sök á efnahagshruninu frá sér, og inn á annarra lóðir, þá var þetta býsna skörulega sagt.
Og mættu ýmsir taka sér til fyrirmyndar.
Blogg
HRAUSTLEGUR KÁRI
09:11 › 17. nóvember 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
