Tortryggnin er mikil í samfélaginu og helst í garð stjórnvalda.
Það er líka full ástæða til.
Komið hefur rækilega í ljós að íslensk stjórnvöld hafa lengst af ekki verið trausts verð.
Því vakna strax tortryggnisraddir í brjóstinu þegar svona hugmyndir komast á kreik.
Að forsætisnefnd Alþingis hafi hrint úr vör hugmyndum um að skipa níu manna þingmannanefnd sem eigi að fara yfir og ákveða hvað gera eigi við niðurstöður rannsóknarnefndar Alþingis.
Rannsóknarnefndin varð fyrir áfalli í vor þegar í ljós kom að tveir nefndarmenn vildu reka Sigríði Benediktsdóttur úr nefndinni fyrir þá sök að hafa sagt í viðtali að eftirlitsstofnanir með fjármálastarfsemi á Íslandi hefðu líklega brugðist.
Eins og það lægi nú ekki í augum uppi.
Það sem meira var, nefndarmennirnir tveir óskuðu þess að Sigríður segði ósatt um af hverju hún segði af sér.
Færi að ljúga einhverju um persónulegar ástæður.
Þokkaleg sannleiksnefnd það.
Sem betur fór tókst að koma í veg fyrir að Sigríður væri neydd til að segja af sér.
En nefndarmennirnir tveir, Páll Hreinsson og Tryggvi Gunnarsson, settu með þessu mjög óþægilegan blett á starf nefndarinnar.
Vonandi hafa þeir Páll og Tryggvi tekið sig á og skila góðu og heiðarlegu verki. Það er svo sem engin sérstök ástæða til að búast við öðru.
En hugmyndir um að 9 manna þingnefnd fari svo yfir niðurstöðurnar, þær hljóma óþægilega.
Vissulega er nefndin skipuð af Alþingi og þannig séð er kannski eðlilegt að Alþingismenn fjalli sérstaklega um niðurstöðurnar.
En að allir níu verði að vera "einhuga" um að vísa hugsanlegum brotamálum áfram hljómar illa.
Það er hætt við að þá verði ekkert gert.
Og ég ætla rétt að vona að þessi 9 manna þingnefnd eigi ekki að taka ákvörðun um hvað af niðurstöðum nefndarinnar verði yfirhöfuð birt opinberlega.
Ef maður setur á sig allra tortryggnustu gleraugun sín, mætti jafnvel skilja orðin í fréttinni þannig.
Ég held samt að það hljóti að vera rangt.
Auðvitað á að birta allt sem þessi nefnd skilar frá sér.
Og ekki nóg með það.
Það á líka að birta öll vinnugögn, yfirheyrslur, fundargerðir, minnismiða, tölvupósta, etc.
Hvern einasta pappír.
Er ekki öruggt að það verði gert?
Blogg
BIRTA VERÐUR HVERN EINASTA PAPPÍR
12:17 › 17. nóvember 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
