Pressan.is segir frá því í heilmiklum vandlætingartóni hér að komist hafi upp að stóru tísku- og glanstímaritin úti í heimi lagi ekki aðeins til myndir af fullorðnum fyrirsætum, heldur líka börnum.
Að laga til myndir er nú oftast bara kallað að "fótósjoppa" og í þessu tilfelli merkir það að þurrka út í tölvu allar meintar "misfellur" í andliti og/eða vexti viðkomandi fyrirsætu, eyða sérhverjum votti að hrukku o.s.frv.
Pressan.is er sem sagt þrumu lostin yfir því að þetta tíðkist ekki aðeins við myndir af fullorðnum, heldur líka börnum.
En þetta fannst mér nú ekki merkilegar fréttir.
Fyrir fimm árum vann ég í nágrenni við þá miklu snillinga, Teit og Hara Jónassyni, sem báðir eru ljósmyndarar.
Þeir bræður voru ekki aðeins flinkir með myndavélina sjálfa, heldur líka afar glúrnir að fótósjoppa í tölvunum sínum á eftir.
Einu sinni kom ég þar að sem Teitur var að fótósjoppa portrett-mynd af konu sem sat með köttinn sinn í fanginu. Myndin átti að prýða viðtal við konuna í Birtu, sem þá var fylgirit Fréttablaðsins.
Ég hafði orð á því við hann að það væri hreinasti óþarfi að vera eitthvað að fótósjoppa þessa konu, svo væri hún forkunnarfögur.
Og Teitur (eða var það Hari?) tók undir að það hefði lítið þurft að "laga" konuna, enda væri hann löngu búinn að því.
Nú væri hann að fótósjoppa köttinn.
Blogg
FÓTÓSJOPPAÐI KÖTTINN!
16:03 › 16. nóvember 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
