ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.3° 5m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

ÞJÓÐFUNDURINN

19:49 › 13. nóvember 2009


Ég verð að viðurkenna að ég skil ennþá ekki alveg hvernig Þjóðfundurinn um helgina mun fara fram, eða hverju er ætlast til að hann skili.

Þó er ég búinn að hlusta á ein tvö viðtöl þar sem kátir forsvarsmenn fundarins reyndu að útskýra þetta fyrir mér.

Kannski er ég bara svona tregur af því ég er lítill fundasetumaður.

En þó ég skilji þetta ekki hundrað prósent, þá hljómar þetta samt skemmtilega.

Og núna þurfum við svo sannarlega á einhverju nýju að halda, bæði í hugsun og vinnubrögðum.

Því vona ég að Þjóðfundurinn heppnist vel, og miðað við eldmóðinn í aðstandendunum hlýtur það nú að teljast líklegt.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.