ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 10m/s ESE
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

ER ÞETTA LEIÐIN?

08:32 › 12. nóvember 2009


Fréttablaðið segir frá því að nú sé til athugunar sérstakur tímabundinn skattur á lífeyrissjóðina. Hann gæti skilað 25 milljörðum króna á ári, og greinilega er verið að hugsa um hann til þriggja ára.

Þetta hljómar í rauninni mjög vel.

25 milljarða tekjur af þessum skatti á hverju ári í þrjú ár gætu líklega dugað til að slaka töluvert á kló kreppunnar annars staðar.

En verði þessi skattur settur á lífeyrissjóði þarf að gæta mjög vandlega að tvennu.

Í fyrsta lagi verður að vera alveg tryggt og geirneglt að skatturinn sé þá bara til þriggja ára, og verði ekki framlengdur svo lítið ber á.

Það hefur alltof oft gerst hér á landi að setja hefur átt skatt eða gjöld tímabundið, en svo hefur bara verið haldið áfram að innheimta.

Og í öðru lagi verður þá að fylgjast grannt með því hverjir fara verst út úr slíkum skatti af eigendum lífeyrissjóðanna (það er að segja almenningi) og finna leið til að bæta þeim það upp við fyrsta tækifæri, það er að segja strax og við verðum orðin forrík aftur!


 



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.