ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 6m/s WSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

DAPURLEG ÖRLÖG NÆSTBESTA ÍSLENDINGSINS

08:03 › 11. nóvember 2009


Þetta er soldið fyndið hjá Ólafi Arnarsyni.

Ég verð að vísu að segja að mér þykir í sjálfu sér ekkert athugavert við að Mogginn skuli halda úti nafnlausum dálki þar sem jafnvel er hent gaman að fólki stundum.

Svarthöfði í DV gerir það oft af mikilli hind; hví skyldu Staksteinar ekki mega reyna slíkt líka?

Þó Staksteinar upp á síðkastið gangi reyndar nokkuð illilega í berhögg við hefðir Morgunblaðsins, einkum hinar yngri hefðir síðustu ára, þar sem pólitísk illgirni var næstum aflögð.

Og það verð ég að segja að í aðra röndina þykir mér hlutskipti ritstjóra Morgunblaðsins þrátt fyrir allt býsna sorglegt.

Þetta er maðurinn sem um aldamótin síðustu veitti Halldóri Laxness harða keppni í skoðanakönnunum um merkasta Íslending 20. aldarinnar.

Og sumar af krákum hans vildu reyndar óhikað halda því fram að hann væri frábærasti Íslendingur allra tíma.

En - eins og Ólafur bendir á í grein sinni - hefur hann hvarvetna skilið eftir sig sviðna jörð.

Afrakstur borgarstjóratíðar hans í Reykjavík voru Ráðhúsið og Perlan og vissulega voru innmúruð í húsin fæðingardagar pabba hans og mömmu, en flokkur hans í borginni hefur enn ekki borið þess bætur hvílíkt eyðiland hann skildi annars eftir sig í borgarstjórnarflokki sínum.

Afrakstur formannstíðar hans í flokknum er sá að flokkurinn var í sárum.

Afrakstur forsætisráðherratíðar hans var einkavinavæðing bankanna, þenslan og útrásin. Og síðan hrunið.

Afrakstur utanríkisráðherratíðar hans voru fleiri sendiherrar á styttri tíma en nokkru sinni hefur þekkst.

Afrakstur tíma hans í Seðlabankanum var sá að bankinn varð gjaldþrota.

Og sú situr þessi næstbesti Íslendingur 20. aldar á Morgunblaðinu á sínum efri dögum og hefur ofan fyrir sér með því að skrifa kvikindisskap um Ólaf Arnarson.

Með fullri virðingu fyrir Ólafi, þá finnst mér það frekar trist.

En líklega má enn treysta á krákurnar, að þær komi, nokkuð rytjulegar orðnar kannski og svolítið mattar á þeim fjaðrirnar, og þær kreisti upp úr sér í morgunsárið:

"Stórkostleg grein hjá þér í morgun, meistari, frábært, frábært, hvernig þú tókst hann! Nú hlýtur hann að þagna, meistari, nú ber hann ekki framar sitt barr, meistari, meistari!"

Æjá.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.