ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.7° 7m/s WSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

LÁNSHÆFISFYRIRTÆKIN ERU SJÁLF RUSL

13:12 › 11. nóvember 2009


Ég verð að segja: Ég ber afar takmarkaða virðingu fyrir lánshæfismati fyrirtækja á borð við Moodys, Standard&Poor, Fitsch og hvað þau heita.

Árum saman básúnuðu þessi fyrirtæki að íslensku bankarnir væru traust og frábær fyrirtæki og íslenska ríkið það ábyggilegasta í heimi, eða svo gott sem.

Og núna, þegar þær fréttir berast hér að eitt þessara fyrirtækja hafi lækkað Ísland niður um tvo flokka í lánshæfismati sínu, svo það sé nú bara steinsnar ofan við ruslflokk, en samtímis sé það merki um betri horfur í íslensku efnahagslífi, þá hristi ég nú bara hausinn.

Ég nenni bara ekki að heyra meira um þessi fyrirtæki og þeirra rusl.





ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.