Allt frá hruninu hafa menn jarmað og baulað á víxl.
"Útlendingar verða að koma okkur til hjálpar. Við ráðum ekki við þetta sjálf."
Enda, af hverju ættum við endilega að ráða við þetta sjálf?
Þetta er flóknasta og erfiðasta bankakreppa í manna minnum, og ofan á bankakreppuna bætist gjaldmiðilskreppa vegna hinnar handónýtu krónu sem við sitjum uppi með.
Og af hverju ættum við að eiga mannskap til að fást við þetta?
Íslendingar eru nákvæmlega jafn margir og íbúar Coventry. Býst einhver í alvöru við að í Coventry hljóti að leynast nógu flinkir einstaklingar til að takast á svona erfiða kreppu?
Það tókst loks, eftir mikið japl og jaml og fuður, að koma rannsókn á mögulegum brotum í bankakerfinu og víðar á skrið þegar útlendingurinn Eva Joly kom þar til aðstoðar.
Þegar að endurreisn bankakerfisins kom virtist í fyrstu eiga að leita aðstoðar færustu sérfræðinga erlendis.
Hingað kom Mats Josefsson frá Svíþjóð, sérfræðingur í að fást við bankakreppu, og veitti ráðgjöf.
Nú upplýsir Josefsson að íslensk stjórnvöld hafi ekki borið gæfu til að fara nærri nógu vel eftir ráðleggingum hans.
Sjá hér.
Er nú ekki ráð fyrir íslensku ríkisstjórnina að láta af þeim flumbrugangi sem Josefsson gagnrýnir og gera bara einu sinni ALLT sem hann stingur upp á, og það STRAX?
Þykjast íslenskir sérfærðingar vera færari?
Blogg
HLÝÐIÐ JOSEFSSON STRAX!
19:06 › 11. nóvember 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
