ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

LITLA LJÓTA KLÍKAN FÖST BAK VIÐ KALDASTRÍÐSMÚRA

09:55 › 10. nóvember 2009


Sko.

Ég er ekkert endilega þeirrar skoðunar að hver einn og einasti sjálfstæðismaður ætti að drífa sig sem fyrst niður í dimma dimma hellinn þar sem Fransmaðurinn Michel Siffre hafðist við í sjónvarpsþættinum í gærkvöldi.

Og koma ekki upp aftur fyrr en almennilegt fólk er búið að hreinsa til eftir hrunið sem þeir ollu, öðrum mönnum fremur.

Nei, ég er alls ekki þeirrar skoðunar.

Ég er meira að segja á því að sjálfstæðismenn geti vel haft hlutverki að gegna við endurreisnina.

En þá þurfa þeir að horfast í augu við ábyrgð sína. Bæði á þeirri röngu stefnu sem fylgt var í aðdraganda hrunsins, sem og á því ástandi sem nú ríkir á Íslandi.

Og áður en einhver stekkur til og æpir: "En þeir bera ekki einir sökina!" þá er það auðvitað rétt. En þeirra sök er lang stærst.

Og þar að auki virðast aðrir lengra komnir í að horfast í augu við sína ábyrgð en sjálfstæðismenn.

Ekki útrásarvíkingarnir eða bankamennirnir að vísu.

En til dæmis Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, sjá hér.

En það sem ég vildi sagt hafa - þó mér finnist sem sagt ekki að sjálfstæðismenn þurfi að skríða niður í dimman helli og halda þar alveg kjafti í smán sinni, þá datt mér nú samt einmitt það í hug þegar ég las þennan þvætting í Sigurði Kára.

Sjálfsagt þykir þetta ægilega sneddí og snjallt hjá litlu ljótu klíkunni í Sjálfstæðisflokknum sem Sigurður Kári þjónar enn af trúmennsku.

"Já, hei, vá, en klárt, Siggi Kári! Tengja saman Stasí og Steingrím, jeje!"

Hvað á maður að segja við orðum eins og þessum?

"Íslenskir vinstrimenn munu ekki geta komið í veg að fólk flýji það
draumaríki sem þeir eru nú að reyna að skapa með sömu aðferðum og
kollegar þeirra í Austur-Þýskalandi beittu forðum daga."

Íslenskir vinstrimenn eru að burðast við að endurreisa samfélagið eftir hrunið sem sjálfstæðismenn bera mesta ábyrgð á.

Til þess grípa þeir til ýmissa ráða, og þar á meðal eru skattahækkanir.

Enginn mótmælir því að vissulega þarf að hækka skatta. Ekki einu Agnes Bragadóttir sem ég heyrði í augnablik í útvarpinu í morgun.

Spurningin er hversu mikið þarf að hækka skatta.

Ekki skal ég segja hvort leið Steingríms J. og félaga er endilega sú eina rétta. Mér heyrist reyndar að hann sé tilbúinn að sýna sveigjanleika í því efni.

En alla vega er það gjörsamlega út úr öllu korti að spurningin um hvort skattar þurfi að vera svolítið meiri eða minni á Íslandi skuli í huga útsendara litlu ljótu klíkunnar verða jafngildi þess ömurlega kúgunarríkis sem hið gamla Austur-Þýskaland var.

Eða að íslenskir vinstrimenn séu að "reyna að skapa ... það draumaríki".

Þetta er svo ósvífið og heimskulegt að það er ekki einu sinni fyndið.

Í gær var því að vonum fagnað að Berlínarmúrinn var rifinn niður.

Sigurður Kári og litla ljóta klíkan virðast enn föst bak við sína kaldastríðsmúra.

Ég vona að sem fæstir Íslendingar húki þar með þeim.






ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.