ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

FYRIRSPURN TIL PÁLS MAGNÚSSONAR ÚTVARPSSTJÓRA

21:45 › 10. nóvember 2009


Sæll Páll.

Í sjónvarpinu núna er viðtalsþáttur danska sjónvarpsins við Anders Fogh Rasmussen, fyrrverandi forsætisráðherra Dana.

Hann er að sýna sjónvarpsmanni borðið þar sem hann sat í menntaskóla.

Af hverju er verið að sýna þetta?

Af hverju er ekki verið að ræða við Jóhönnu Sigurðardóttur eða Geir Haarde eða Davíð Oddsson?

Og fræða okkur um æsku og uppvöxt þeirra?

Ég á náttúrlega ekki endilega við að ég þrái að horfa á viðtalsþætti við gamla og nýja pólitíkusa okkar.

Ég á við að ég skil ekki af hverju við eigum að horfa á danskan viðtalsþátt við danskan pólitíkus í stað þess að horfa á íslenska þætti um Íslendinga.

Þetta er nefnilega ekki eini danski þátturinn sem sýndur verið hefur í sjónvarpinu upp á síðkastið.

Á undanförnum mánuðum hafa verið þættir um Dani sem ferðast til fjarlægra heimshorna, um Dani sem bjuggu á eyjum við Karíbahaf, um Dani sem sitja í fangelsi.

Hvar eru þættirnir um okkur Íslendinga?

Með bestu kveðju, o.s.frv.





ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.