Alveg var ég búinn að steingleyma þessum kalli.
Hann skaut íbúum austurstrandar Bandaríkjanna skelk í bringu í október 2002. Ásamt hjálparkokki sínum drap hann tíu manneskjur úr launsátri áður en hann náðist.
Bandaríkjamenn grunaði að bak við morðin stæðu hættulegir múslimskir hryðjuverkamenn.
Og þegar morðinginn var handtekinn og í ljós kom að hann hét Muhammad urðu þeir náttúrlega handvissir um þetta.
Hjálparkokkurinn á táningsaldri, piltur sem ekki stígur víst í vitið, mun víst hafa ýtt undir þá trú með einhverju samhengislausu rausi um Jihad.
En svo kom í ljós að morðin voru bara eftiröpun af ABC-morðunum eftir Agöthu gömlu Christie.
Þar sem maður, sem ætlar að drepa tiltekna manneskju, setur á svið raðmorð af handahófi.
Fyrir Muhammad vakti víst það eitt að drepa fyrrverandi konuna sína.
Hann hafði ekki tíma til þess áður en hann var gómaður, en tíu manns féllu í valinn í þessari tilraun hans.
Blogg
ABC-MORÐIN
18:21 › 10. nóvember 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
