Friðarverðlaun Nóbels til Baracks Obama eru auðvitað bara grín.
Enda reikna ég með að honum sjálfum þyki sér heldur lítill greiði gerður.
Vafalaust hefur það lengi verið einn æðsti draumur hans að vinna friðarverðlaun Nóbels.
En varla svona. Fyrir akkúrat ekki neitt.
Ef ég væri hann myndi ég afþakka verðlaunin.
Og ráðlegg honum það hér með, í fyllstu hógværð, ef hann skyldi nú vera að lesa þetta!
"Takk kærlega, en ég verðskulda þetta ekki. Ekki ennþá. Kannski seinna, vonandi."
Þetta er annars mjög undarlegt uppátæki hjá norsku Nóbelsnefndinni.
Já, alveg glórulaust.
Eina skýringin sem mér dettur í hug er einfaldlega að nefndarmenn hafi bara langað að hitta stórstjörnuna Obama.
Og hana Michelle.
"Ég meina, hann var í Kaupmannahöfn um daginn, því skyldum við ekki fá hann til Osló líka?"
En Obama fór algjöra fýluferð til Kaupmannahafnar, þegar hann reyndi að útvega Chicago-borg ólympíuleikana, en borgin datt út í fyrstu umferð.
Og ferð Obama til Osló að taka við friðarverðlaununum gæti reynst álíka álappaleg.
Ég var í Osló þá desemberdaga árið 1994 þegar Ísak Rabín, Símon Perez og Jassír Arafat komu þangað til að taka við friðarverðlaununum sem þeir fengu fyrir að brjóta blað í samskiptum Ísraela og Araba.
Því miður komu öfgamenn úr herbúðum beggja í veg fyrir að frumkvæði þeirra næði að skjóta rótum.
Afdrifaríkast varð þegar Rabín var myrtur af öfgamanni Gyðinga tæpu ári eftir verðlaunaafhendinguna í Osló.
Rabín var hershöfðingi og hörkutól og það hafði einmitt þess vegna skilað svo miklum árangri þegar hann áttaði sig á því að Ísraelar yrðu að semja við Palestínumenn.
Ég gleymi því seint þegar ég sat á hótelherbergi í Osló og horfði á Rabín flytja þakkarræðu sína meðan utandyra var allt vaðandi í lögreglu og öryggisvörðum.
Þetta var frábær ræða, ein sú besta sem ég hef heyrt.
Gamli hershöfðinginn og harðlínukarlinn lítur yfir líf sitt. Hann talaði hægt og þurrlega, en undiraldan bæði í orðum hans og fasi leyndi sér ekki.
Ég þýddi þessa ræðu seinna fyrir Moggann, en á ensku er þessa ræðu að finna hér.
Ég mæli með að fólk lesi hana. Þarna talar maður sem virkilega hefur gert eitthvað.
Hvað skyldi Obama ætla að segja?
Blogg
OBAMA ÆTTI AÐ HAFNA VERÐLAUNUNUM
10:57 › 9. október 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
