Burtséð frá því hvernig við vildum óska að heimurinn liti út, þá verðum við að taka mark á þessu.
Burséð frá því hve illan bifur við höfum á Alþjóðagjaldeyrissjóðnum svona yfirleitt, þá þýðir ekki að berja hausnum við steininn í nafni þjóðlegrar reisnar.
"Þjóðleg reisn" er raunar mjög varasamt hugtak.
Við þurfum að klára þetta mál núna, bæði Icesave og endurskoðun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.
Persónulegar skoðanir og óskir mega því miður ekki blandast inn í það akkúrat núna.
Þaðan af síður fordómar og stolt.
Ég geri þá kröfu til ríkisstjórnarflokkanna að þeir klári málið í snarhasti.
Og ég geri þá kröfu til stjórnarandstöðuflokkanna að þeir láti af sinni óábyrgu niðurrifsstarfsemi og annaðhvort taki þátt í því sem þarf að gera, eða haldi sig til hlés ella.
Rétt á meðan þessi stormur gengur yfir.
Blogg
MEÐAN STORMURINN GENGUR YFIR
14:29 › 9. október 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
