Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra hefur svolítið misjafnt orð á sér.
Enginn frýr honum vits en meir er hann grunaður um spuna.
Enda virkar hann óneitanlega svolítið "slick" stundum.
En hérna virðist Árni Páll hafa mörg lög að mæla.
Og hafa gert það skörulega.
Það vantar stundum hitann í Samfylkinguna.
En þarna virðist Árna Páli hafa hitnað svolítið í hamsi, og það er gott.
Því það er óskiljanlegt hvernig ríkisstjórnarflokkarnir hafa smátt og smátt verið að glata frumkvæði í umræðunni í samfélaginu.
Það er eins og þeir hafi verið á góðri leið með að láta hrunflokka sjálfstæðismanna og framsóknarmanna mála sig út í horn.
Kominn tími til þess að láta hrunkóngana aftur heyra það!
Blogg
KOMINN TÍMI TIL!
08:22 › 9. október 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
