ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.0° 5m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

RÁÐGÁTA Í ÁSTRALÍU

13:16 › 8. október 2009


Ég hlýt að vekja athygli á því að í dag kemur út nýtt hefti af systurblöðunum Sögunni allri og SKAKKA TURNINUM.

Sagan öll skartar á forsíðu Ívani grimma Rússakeisara, málverki þar sem hann heldur á blóðugu líki sonar síns. Ívan sjálfur varð honum að bana.



Einnig er í Sögunni allri fjallað um Marilyn Monroe, einkennileg mannshvörf, sögu fallaxarinnar og þá mikilvægu spurningu hvort forfeðurnir hafi verið skítugri en við.

SKAKKI TURNINN hefur aftur á móti forsíðunni mjög svo dularfullt mál frá Ástralíu.



Þar fannst lík árið 1948 og enn þann dag í dag hefur ekki tekist að upplýsa hver dauði maðurinn var.

En greinilegt að eitthvað undarlegt hafði átt sér stað.

Við sögu kemur undarlegt dulmál, persneskur kvæðabálkur og (kannski) sovéskir njósnarar!

Og er þá fátt eitt talið!

Einnig er í blaðinu fjallað um ógeðsleg ennistattú, kjánalegustu uppfinningar heimsins og idjótískustu teiknimyndapersónurnar.

Að ekki sé minnst á mannætuna Bókassa keisara í Mið-Afríku. Eða var hann mannæta?

Margt margt fleira kemur við sögu í blaðinu.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?