ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.0° 5m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

HERTA MÜLLER FÆR BÓKMENNTAVERÐLAUN NÓBELS!

10:50 › 8. október 2009


Herta Müller var að fá Nóbelsverðlaun í bókmenntum.

Ég ætla ekki að þykjast hafa þekkst mikið til hennar, en hún virðist hin merkasta kona.

Herta er af þýsku bergi brotinn, ein þeirra Þjóðverja sem settust á fyrri öldum að í Rúmeníu. Hún fæddist 1953 og vann á yngri árum fyrir sér sem þýðandi og leikskólakennari. Þegar hún byrjaði að skrifa (á þýsku) þurfti hún að sæta ritskoðun svo verk hennar komu út í limlestu formi. Það var alsiða í Rúmeníu á tímum Ceausescu.

Árið 1987 fékk hún leyfi til að flytjast til Þýskalands og hefur búið þar síðan. Hún hefur gefið út fjölda bóka síðan, skáldsögur, ljóð, ritgerðir og fleira.

Sænska akademían segir að hún hafi alveg einstæða rödd í bókmenntum, maður þurfi ekki að lesa nema hálfa síðu af texta eftir hana til að vita að þetta hafi Herta Muller skrifað. Mörgum "almennum lesendum" þykir hún erfið aflestrar, að sögn, og strax á blaðamannafundinum þar sem tilkynnt var um verðlaunin var farið að bera hana saman við Elfriede Jelinek, austurríska höfundinn sem fékk verðlaunin 2004.

Að vera líkt við hana bendir vart til þess að Herta sé endilega mjög "lipur" eða "læsilegur" höfundur, en hún hefur sankað að sér fjölda verðlauna af öllu tagi.

Síðasta skáldsaga hennar heitir Atemschaukel sem lýsir erfiðu lífi þýskættaðra kvenna í Rúmeníu eftir seinni heimsstyrjöldina. Hlutskipti flóttamanna og þeirra sem búa á framandi slóðum eru hennar áhugamál.

"Hún hefur svo sannarlega sögu að segja," sagði ritari Akademíunnar rétt í þessu, "og býr yfir tungumáli til að túlka þá sögu."

- - - -

Viðbót.

Ég hafði steingleymt því, sem Sjón benti svo á, að ein bók eftir hana hefur komið út á íslensku.

Ennislokkur einvaldsins, árið 1995, í þýðingu Franz Gíslasonar.

Ég byrjaði að lesa þá bók, en heillaðist ekki.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?