Hvaða rugl er þetta allt í einu sem hver étur upp eftir öðrum að nú eigum við að "skella í lás", "standa í lappirnar", "láta ekki vaða yfir okkur" og svo framvegis?
Ég er ekki aðdáandi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og er hjartanlega sammála öllum þeim sem vilja að við kveðjum hann sem fyrst.
En þrátt fyrir að margt misjafnt megi segja um AGS nútímans undir forystu Dominique Strauss-Kahn, þá er hann ekki sú efnahagslega aftökusveit sem búið er að útmála með gömlum hryggilegum sögum frá Suður-Ameríku.
Þetta er vissulega misvitur stofnun sem ekki gerir allt rétt, og við þurfum að koma vitinu fyrir á sumum sviðum, en er okkur því miður nauðsynleg í augnablikinu.
Og eigum við þá ekki bara að slappa af og anda með maganum?
Mig langar ekkert að læsa mig eða mína inni í einhverju fangelsi til að losna hugsanlega við að borga einhverjar skuldir.
Þessi firna andúð í garð útlendinga er mögnuð upp af einmitt þeim stjórnmálaöflum sem komu okkur í þau vandræði sem við eigum nú við að stríða.
Og þetta er desperat tilraun þeirra til að komast aftur til þeirra valda sem þessi öfl þrá - og telja sig eiga rétt á.
Við fylgdum þeim fram af bjargbrúninni og niður í hyldýpi hrunsins; eigum við að fylgja þeim í sjálfskipaða einangrun frá öðrum þjóðum líka?
Svo litlu kallarnir í þessum stjórnmálaflokkum fái að deila og drottna?
Nei, að standa í lappirnar er ekki að hlaupa í felur og gefa skít í skyldur sínar, hve þungbærar sem þær kunna að vera.
Ekki heldur að hlaupast undan raunveruleikanum.
Allra síst að leita aftur í fang þeirra sem eiga alla sök á hruninu.
Að standa í lappirnar er þvert á móti að standa sína plikt.
Og reyna að takast á við erfiðleikana á sómasamlegan hátt.
Blogg
HVAÐA RUGL, HVAÐA RUGL?!
11:49 › 7. október 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
