Anna Sigrún Baldursdóttir skrifar þetta hér á Eyjuna (og ég leyfi mér að birta þetta í heild og segi bara amen):
"Það er líklega óhætt að fullyrða að ríkisstjórnarsamstarf
Samfylkingar og Vinstri grænna í nokkurri óvissu í ljósi viðkvæms
ástands í VG.
Það eru ýmsir sem biðla til VG í þeirri viðkvæmu stöðu sem
flokkurinn er í nú. Einna ófyrirleitnastur er þó (að vonum) ritstjóri
Morgunblaðsins. Af velþekktri kænsku sinni hefur hann kynnt
undir óvissu og egóum einstakra þingmanna í leiðurum og staksteinum
undanfarinna daga. Í morgun tók þó sennilega steininn úr þegar
formaðurinn fyrrverandi lofar stuðningi Sjálfstæðisflokksins við
minnihlutastjórn Vinstri Grænna.
Merkilegt er að ritstjórinn telur að
Sjálfstæðisflokkurinn geti varið VG-stjórn, sá sami FLokkur og hann
sjálfur segir að á næstunni muni FLokkurinn boða stefnu sína í
nýfjárfestingum í orkufrekum iðnaði. Eins er magnað að horfa á
Icesave-útúrsnúninginn í málflutningnum - þarf í alvörunni að minna
menn á að það var formaður VG sem skipaði samninganefndina og lýsti svo
árangrinum sem “glæsilegum”.
Væntanlega er þetta þó upptaktur að kænskulegum biðleik, enda yrði
gengið til kosninga í vor, þar sem FLokkurinn styrkti sig en VG
þurrkaðist þá endanlega út, notaður og beygður hafandi gengið erinda
þeirra afla sem í eðli sínu eru algerlega andstæð hugsjónum VG.
Nú á næstu klukkustundum eða dögum má ætla að framtíð
ríkisstjórnarinnar og sennilega VG ráðist. Hverjir falla fyrir
fagurgala freistarans í Hádegismóum og hverjir standa í lappirnar?
“Allt sem þú vilt skaltu fá - ef þú fellur fram og tilbiður mig.""



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
