ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.0° 5m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

EINFALT MÁL?

14:47 › 7. október 2009


Enginn er ég innanbúðarmaður í íslenskum stjórnmálaflokkum.

En mér sýnist þó að tvennt sé augljóst.

Að Samfylkingunni þyki "órólega deildin" í VG laus við ábyrgðartilfinningu og leiki sér að eldinum af einhverju misskildu stolti, jafnvel bara persónulegu stolti.

Að "órólegu deildinni" í VG þyki Samfylkingin ganga fram með frekju og heimta að VG samþykki nánast hvað sem er, jafnvel án þess að Vinstri grænir hafi fjallað um það nógsamlega.

Hm. Er ekki frekar einfalt mál að leysa þetta? Þarf nokkuð að stofna þjóðarhag í hættu, eða hleypa hrunkóngunum aftur að valdastólum af því fólk getur ekki sest niður og leyst málið á einni kvöldstund?







ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?