ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.0° 5m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

TIL UNDARLEGA MIKILLAR HUGARHÆGÐAR

09:06 › 6. október 2009


Framhaldssögunni þar sem ég keyri rólega og yfirvegað að kvöldlagi á mínum Volvó eftir Skúlagötunni á leiðinni að líkamsræktinni inní Laugum vindur áfram hér!

Í gærkvöldi gat ég að vísu ekki hlýtt á þann ágæta útvarpsþátt Hið opinbera þessa stund þar sem Birgitta Jónsdóttir var í útvarpinu að lesa ræðuna sína við eldhúsdagsumræður.

Það þóttu mér slæm skipti.

Á hinn bóginn kættist mitt litla hjarta þegar ég sá að það var búið að kveikja á friðarsúlunni hennar Yoko Ono í Viðey.

Þegar dimmast var kreppuveturinn í fyrra varð þessi fallegi ljósgeisli mér til undarlega mikillar hugarhægðar.

Og svo varð aftur í gærkvöldi.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?