ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.0° 5m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

RUGLIÐ UM LÍKKLÆÐIÐ Í TÓRÍNÓ

13:10 › 6. október 2009


Eitthvert fáránlegasta rugl sem um getur í samanlagðri hjátrú mannkynsins er "líkklæðið í Tórínó".

Það er angi af þeim "helgu dómum" sem kaþólska kirkjan vegsamaði eitt sinn svo heitt og innilega.

Sumar kirkjur gengu svo langt að geyma sem sérstaka dýrgripi litla úldna húðflipa sem áttu að "forhúð Krists". Og þetta skipuðu prestar fólki að vegsama.

"Líkklæðið í Tórínó" er frá 13. til 14. öld, eins og hefur verið sannað fyrir löngu.

Og reyndar kom aldrei til mála að það væri frá dögum Jesúa frá Nasaret.

En ennþá eru menn að fjalla um þessa vitleysu eins og þetta sé eitthvað sem taka þarf alvarlega afstöðu til.

Sjá hér.





ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?