Þau eru að byrja að hrynja inn, Nóbelsverðlaunin. Frá fornu fari hef ég alltaf mestan áhuga á verðlaununum í bókmenntum þó ég viðurkenni að á seinni árum hefur heldur dregið úr þeim áhuga.
Einu sinni gat ég þulið listann yfir Nóbelsverðlaunahafana kórrétt frá upphafi til enda, en nú man ég varla hver fékk verðlaunin í fyrra eða hitteðfyrra.
Jú, það var franskur höfundur sem fékk verðlaunin í fyrra, Le Clézio heitir hann, maður sem ég þekki hvorki haus né sporð á, og hefur aldrei verið sérlega vinsæll. Vafalítið er hann þó hinn merkasti maður, enda á hann afmæli 13. apríl rétt eins og Samuel Beckett og ég.
Í hitteðfyrra var það Doris Lessing. Ég þekki auðvitað nafnið á henni en hef líklega aldrei lesið bók eftir hana. Ætti ég endilega að hafa gert það?
En þótt áhuginn á Nóbelsverðlaununum hafi eitthvað minnkað, þá er nú samt gaman að giska á hver hlýtur hnossið.
Það er að vísu vonlaus iðja, því sænska akademían gerir næstum aldrei það sem búist er við af henni, en það má nú leika sér samt.
Og mínir kandídatar eru þrír.
Mario Vargas Llosa frá Perú. Hann hefur oft verið nefndur og kannski er hann lentur í stöðu Grahams sáluga Greene; nefndin vill ekki velja hann af því allir eru sífellt að spá því að hann hljóti að fá verðlaunin. En hann hlýtur að koma sterklega til greina, hvað sem þvermóðsku nefndarinnar líður.
Þó ekki væri nema vegna þess að spænskumælandi höfundur hefur ekki fengið þennan pening síðan 1990 þegar Octavio Paz var verðlaunaður.
Vargas Llosa hefur það líka fram yfir aðra kandídata mína að ég hef lesið nokkrar bækur eftir hann!
Sýrlenska ljóðskáldið Adonis hef ég aldrei lesið. En hann hefur oft verið nefndur á síðustu árum, og fær verðlaunin líklega á endanum. Það hjálpar honum að ljóðskáld hefur ekki hlotið þessi verðlaun í 13 ár eða síðan hin pólska Wislawa Szymborska fékk þau 1996.
En ekki kæmi mér heldur á óvart þó keníski höfundurinn Ngũgĩ wa Thiong'o hlyti verðlaunin. Svartur Afríkumaður hefur ekki fengið verðlaunin síðan Nígeríumaðurinn Woly Soyinka fékk þau fyrstur þeirra 1986. Það truflar kannski sænsku nefndina að Barack Obama á föðurætt sína að rekja til Kenía. En kannski hjálpar það honum.
Nóbelsverðlaunin nema, eftir hrun íslensku krónunnar, um það bil 180 milljón krónum.
Fyrst ég er að spá einhverjum þessara þriggja verðlaununum, þá má ganga út frá því sem vísu að enginn þeirra fái þau.
Ljóðskáld frá Suður-Kóreu kannski?
Blogg
HVER FÆR 180 MILLJÓNIR?
10:45 › 6. október 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
