Einar K. Guðfinnsson er frægur húmoristi, eins og allir vita.
Hann er svo fyndinn að nú hefur hann heimfært frægan texta Ómars Ragnarssonar upp á ríkisstjórnina.
"Þrjú hjól undir bílnum ..." og svo framvegis.
Og á bloggsíðunni sinni heldur grínarinn áfram, brosandi í kampinn:
"Þeir sem skáldlegastir eru, vitna gjarnan í stórskáldin í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra, líkt og þeirri sem fór fram í gærkveldi. Margt var þar vel mælt og eitthvað um ívitnanir í skáldin okkar. Ég saknaði þó eins ljóðs sem lýsir betur ríkisstjórninni og ástandinu á stjórnarheimilinu en flest annað. Þetta er auðvitað hinn sigildi kveðskapur Ómars Ragnarssonar, Þrjú hjól undir bílnum, sem er eins konar líkingasaga – allegóría – um vesalings ríkisstjórnina.
Þessi tæplega hálfrar aldar kveðskapur á mikið erindi við okkur og er hér með lagt til að ríkisstjórnin hefji fundi sína á þriðjudags og föstudagsmorgnum með því að syngja þetta kvæði. Það er vel viðeigandi þegar í hlut á ríkisstjórn, þar sem allt er á heljarþröm, en samt er látið sem ekkert sé, sbr. ræður stjórnarliða í gærkveldi."
Þetta er rosa fyndið hjá Einari.
Mig verkjar í magann af krampahlátri.
Alveg þangað til það rifjast upp fyrir mér að ríkisstjórnin, sem Einar þykist þess umkominn að tala niður til ("vesalings ríkisstjórnin" o.s.frv.), hún er að burðast við að taka til skítinn sem Einar og félagar hans í frjálshyggjuflokknum hafa skilið eftir sig.
Það gengur kannski ekki alveg nógu hratt. En hún er þó að reyna og eitthvað miðar.
Grínastu í Valhöll, Einar. Þar þykir þetta örugglega fyndið, komandi frá þér. Ekki annars staðar.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
