ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.0° 5m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

EITT LAND ALDREI VALDIÐ SLÍKU TJÓNI ...

17:15 › 6. október 2009


... hjá fjármagnseigendum, eins og við höfum gert. Það sagði Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra á Alþingi í dag, skv. frásögn Vísis:

"Hann sagði hins vegar ljóst, að tjónið vegna hruns fjármálakerfisins væri gríðarlegt á alla mælikvarða. Fjármagnseigendur hefðu á að giska tapað sjöfaldri landsframleiðslu Íslands. „Ég þekki engin dæmi í veraldarsögunni um að eitt land hafi valdið slíku tjóni hjá fjármagnseigendum. Vissulega eru flestir þessir fjármagnseigendur útlendingar en tjónið er þarna engu að síður," sagði Gylfi."



Það væri kannski ágætt að hafa þetta í huga, næst þegar við förum að fjargviðrast um alla vondu útlendingana sem sitja um að gera okkur illt, eins og helst má heyra í málflutningi forystumanna Framsóknarflokksins.

Þótt vissulega eigi íslenskur almenningur svosem ekki sök á öllu þessu tjóni, sem útlendingar urðu fyrir af völdum íslensku bankanna og íslenskra fyrirtækja (og stjórnvalda!), þá hljótum við að sýna því skilning að það kveði ekki beinlínis við húrrahróp þegar við birtumst erlendis.

Og að við þurfum að hafa töluvert fyrir því að ávinna okkur traust á ný.

Það mun ekki gerast með því að naga skjaldarrendur.

 



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?