Ykkur að segja, þá skil ég ekki alveg allt þetta írafár út af ríkisstjórninni. Er virkilega eitthvað hæft í því að hún riði til falls?
Af hverju ætti hún að gera það?
Ögmundur og félagar eru ósáttir við að þurfa að gefa eitthvað eftir af þeim fyrirvörum sem Alþingi samþykkti með miklum harmkvælum í sumar.
Það er skiljanlegt, en þau átta sig samt á því að í samningaviðræðum fæst aldrei allt fram sem maður óskar.
Ef við köllum upphaflega samninginn X, þá fer tvennum sögum af því hvort hann var "skítasamningur" eða bara ósköp eðlilegur miðað við aðstæður.
Altént var Alþingi ekki sátt við hann og setti fyrirvara við hann sem breyttu honum þannig að eftirleiðis gat hann kallast Y.
Það er ekki óeðlilegt þó Bretar og Hollendingar hafi maldað eitthvað í móinn.
Og segjum að þeir leggi fram eitthvað afbrigði af Y sem við getum kallað Z.
Þar með hafa allir aðilar gefið eitthvað eftir.
Og ekkert óeðlilegt við það.
Að minnsta kosti tel ég víst að það hvarfli ekki í alvöru að neinum stuðningsmanni stjórnarinnar að fella hana út af einskærum mismuninum á Y og Z.
Blogg
AF HVERJU ÆTTI STJÓRNIN AÐ FALLA?
11:38 › 6. október 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
