ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.0° 5m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

AÐ KUNNA EKKI AÐ EIGA DAGBLAÐ

07:28 › 6. október 2009


Moggarómantíkin gamla hljóðar svo að þótt allir eigendur blaðsins gegnum tíðina hafi vissulega verið harðir sjálfstæðismenn þá hafi þeir þó ævinlega "kunnað að eiga dagblað".

Sem sé ekki skipt sér af efnisvali blaðsins eða efnistökum.

Það er nú eins og það er, en vonandi að mestu satt.

Aftur á móti virðist Óskar Magnússon ekki alveg kunna að eiga dagblað.

Í fyrsta lagi rýrði hann stórkostlega traust á blaðinu með því að ráða þangað sem ritstjóra sjálfan hrunkónginn.

Það var svo skrýtið uppátæki að það hlýtur að teljast dómgreindarbrestur af stærri gerðinni.

En í öðru lagi hefur hann nú að því er virðist orðið uppvís að því að brjótast inn í tölvukerfi starfsmanna til að lesa póstinn þeirra.

Sjá hér.

Í öllum fyrirtækjum og alltaf og ævinlega er slíkt stóralvarlegt mál.

Á fjölmiðli í þeirri stöðu sem Mogginn er í núna er slíkt enn alvarlegra.

Nú vita blaðamenn Morgunblaðsins þá líklega hvað útgefandinn á til.

Og mun þetta auka trúverðugleika blaðsins?

Onei.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?