ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.0° 5m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

SJÖWALL OG WAHLÖÖ

14:49 › 5. október 2009


Ég sé að nú á loksins að fara að endurútgefa reyfara Sjöwall og Wahlöö. Og ekki vonum seinna. Ég man að ég fór að lesa þær á dönsku fyrir margt löngu, tiltölulega nýhættur að lesa Alistair MacLean. Og þessar bækur voru algjör uppgötvun.

Bæði spennandi og vel skrifaðar.

Upp á síðkastið stekkur fram hver reyfarahöfundurinn af öðrum í Svíþjóð. Henning Mankell, Liza Marklund, Stieg Larsson og hvað þau heita.

Flest eru þau ágæt, en ég held að ekkert þeirra komist í hálfkvisti við þau hjónakornin Sjöwall og Wahlöö.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?