Það er talað um stjórnarkreppu ef ekki tekst að afgreiða Icesave-drauginn á næstu dögum.
Ömurleg tilhugsun.
Þrátt fyrir yfirvofandi niðurskurð og þrátt fyrir erfiðan vetur í vændum, þá eru örfá blómstur að byrja að reyna að brjótast upp úr gaddfreðinni jörð efnahagskerfisins.
Eitt og eitt jákvætt merki.
Ef Icesave verður afgreitt mun þeim blómstrum fjölga. Ekki hratt kannski, en þeim mun fjölga.
En ef hér brýst út stjórnarkreppa af einskæru ábyrgðarleysi þeirra stjórnmálamanna, sem við höfum falið fjöregg okkar, þá visna þau blómstur fljótt.
Enga stjórnarkreppu, takk.
Enga þjóðstjórnarómynd, takk.
Farið að vinna.
Blogg
BLÓMSTRIN MUNU VISNA
11:10 › 5. október 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
