Sem íslenskur kjósandi, skattgreiðandi og þolandi efnahagshrunsins geri ég þá kröfu til þeirra stjórnvalda sem ég hef kosið yfir mig - bæði Alþingis og ríkisstórnar - að Icesave-málið verði afgreitt á næstu dögum.
Ég geri EKKI þá kröfu að ýtrustu fyrirvörum Alþingis verði öllum sporðrennt af Bretum og Hollendingum.
Ég er reiðubúinn að taka þá áhættu að reyna að semja í rólegheitum við þessar þjóðir þegar um hægist eftir efnahagshrunið hér og kreppuna þar.
Það eru enn sjö ár þangað til afborganir hefjast, og ég viðurkenni fúslega að ég hef mjög litlar áhyggjur af því að eitthvað muni standa eftir af skuldinni árið 2024.
Alla vega krefst ég þess að mögulegar hugsanlegar áhyggjur af því verði ekki látnar standa í vegi fyrir öðrum brýnum aðgerðum hér á landi NÚNA.
Ég tel að í bili sé Icesave ekki erfiðasta vandamálið sem við Íslendingar eigum við að glíma.
Þetta er vissulega svívirðilegt mál og við skulum aldrei gleyma því hverjir kölluðu það yfir okkur.
Aldrei.
Það voru Landsbankamenn og þau stjórnvöld sem slepptu þeim lausum á lánamarkaði í Evrópu.
Þetta er mjög alvarlegt mál en í augnablikinu verðum við að fá tóm til að hugsa um eitthvað annað.
Aðrar skuldir munu nær örugglega reynast okkur erfiðari en Icesave.
Ég nefni bara gjaldþrot Seðlabankans í boði Davíðs Oddssonar þáverandi Seðlabankastjóra.
En umframt allt verður að létta af okkur þeirri martröð sem Icesave-málið er orðið.
Kveða niður þennan draug.
Burt með hann!
Ekki seinna en strax.
Afgreiðið Icesave.
Í þeirri viku sem nú er hafin!
Blogg
BURT MEÐ DRAUGINN!
07:51 › 5. október 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
