Jóhanna Sigurðardóttir segir að hér sé allt á uppleið.
Ég hallast eiginlega að því að það kunni bara ef til vill hugsanlega kannski að vera rétt hjá henni.
Ýmis merki eru að minnsta kosti til staðar.
Uppáhaldsfótboltabúðin mín, Jói útherji, er svo sannarlega ekki að draga saman seglin. Þvert á móti var Jói að stækka búðina sína í Ármúlanum um helming og er nú bæði handbolta- og körfuboltabúð líka.
Og uppáhaldsbúðin mín yfirleitt, litla byggingavörubúðin Brynja við Laugaveg, virðist ætla að halda velli.
Og þegar ég keyrði í gærkvöldi (á mínum Volvóbíl!) á leið inn í Laugar að hlaupa þar á bretti, þá sá ég að nú eru komin ljós á hvorki meira né minna en tvær og hálfa hæð í glertröllinu við Höfðatorg.
Blogg
ALLT Á UPPLEIÐ, HA, JÓHANNA?
07:37 › 30. október 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
