ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.1° 6m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

HRYLLILEGASTI HILDARLEIKURINN

12:03 › 29. október 2009


Fyrst ég er byrjaður að auglýsa blöðin mín, þá sakar ekki að benda á Söguna alla líka.

Langstærsa efni hennar að þessu sinni er upprifjun á gangi seinni heimsstyrjaldar, en nú eru 70 ár síðan sá viðbjóður hófst.

Í blaðinu eru 16 síður um styrjöldina, og þó ég hafi skrifað þetta sjálfur held ég að ég geti vel haldið því fram að þetta sé ágætis upprifjun.

Hvenær réðust Þjóðverjar inn í Frakkland, og hvenær voru þeir á ferð í Grikklandi? Hvaða lönd í Asíu lögðu Japanir undir sig? Þetta er allt þarna.

Óskar Páll Elfarsson gerði kortin og Tryggvi Ólafsson braut þetta allt saman um svo að unun er á að horfa!

Sjötíu ár, já. Tíminn líður skringilega, eins og við vitum.

Ég man eftir sjálfum mér á bókasafni Hagaskóla ásamt fleiri strákum að skoða tímarit sem þar voru til um gang styrjaldarinnar.

Þetta var rétt upp úr 1970 og drengnum mér fannst þetta allt hafa gerst aftur í einhverri spennandi fornöld.

Þó voru þá ekki nema kannski 27 ár síðan heimsstyrjöldinni lauk.

Fyrir 27 árum var árið 1982. Ekki finnst mér það hafa verið í fornöld ...

En látum svona vera.

Það er þrátt fyrir allt fleira efni í blaðinu en bara heimsstyrjöldin, skemmtileg grein um Grétu Garbó, önnur um Persepólis höfuðborg persneska heimsveldisins og lesendur fá að kynnast sögu vúdú-trúarbragðanna.

Og er þá fátt eitt talið!

Svona lítur blaðið út:





ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?