ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.7° 7m/s WSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

ÞVARGIÐ Í BJARNA AÐEINS TIL HEIMABRÚKS

18:36 › 27. október 2009


Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins var eitthvað að þenja sig í Stokkhólmi í dag.

Vandræðaleg þjóðremba, sýnist mér á fréttum, t.d. hér.

Formaður hrunflokksins rífur hár sitt og skegg yfir því hvað allir hafa verið vondir við aumingja litla Ísland sem ekkert hafði til saka unnið.

Væntanlega hafa forsvarsmenn hinna Norðurlandanna orðið steinhissa.

En þeir vita líklega ekki að þetta þvarg Bjarna var fyrst og fremst til heimabrúks.

Bjarni Benediktsson er, hvað sem öðru líður, alveg óvitlaus maður.

Hann veit þess vegna alveg að það var engan veginn sjálfsagt að okkar norræna "fjölskylda" skyldi rjúka upp til handa og fóta og lána okkur fullt af pening meira og minna skilmálalaust.

Eftir allan okkar flumbrugang, frekju og jafnvel glæpsamlegt framferði - ekki síst á Norðurlöndunum.

En ræðu Bjarna er beint til heimastjórnararms Sjálfstæðisflokksins, til að sýna að Bjarni hafi bein í nefinu og sé treystandi til að vera formaður Sjálfstæðisflokksins.

Því um það eru ekki allir sammála í hrunflokknum.

Þeir sem vilja kenna útlendingum (og í hæsta lagi útrásarvíkingum) um allt okkar böl telja Bjarna alltof linan.

Ræðan átti að sannfæra þá um að Bjarni væri töff gæi.

Henni var beint til sértrúarsafnaðarins í Hádegismóum.

En í leiðinni bætti Bjarni nú varla úr skák okkar gagnvart Norðurlandaþjóðunum sem þurftu að hlusta á þetta.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.