Ég hlýt að taka undir Láru Hönnu Einarsdóttur hér. Ég sá ekki allan kaflann í Silfri Egils þar sem Unnur Brá Konráðsdóttir lét að sér kveða, en þetta var alveg óvenjulega slæm frammistaða hjá konunni.
Sem væri nú sök sér, og stafar kannski í og með af því líklega er hún óvön að koma fram í sjónvarpinu og ætlaði ekki að láta vaða yfir sig, en endaði því miður á því að vera sífellt að vaða yfir alla aðra.
En þessi afsökun dugar þó varla, því ég er því miður smeykur um að stöðug frammígrip Unnar Brár séu afleiðing af því hvernig þingstörf Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins hafa þróast frá hruninu.
Þingmenn gjamma stöðugt fram í, svo þinghaldið - sem maður vonaði að myndi skána þegar þingmenn stæðu frammi fyrir svo geigvænlegum vanda sem nú er raunin - er farið að bera keim af uppþoti á málfundi, ekki í menntaskóla, heldur í grunnskóla.
Þar hefur Unnur Brá lært hvernig á að stunda "umræðu".
Blogg
UPPÞOT Á MÁLFUNDI
12:44 › 26. október 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
