ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.1° 6m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

ENDURBIRTIR MOGGINN MYNDINA AF DAVÍÐ?

09:42 › 26. október 2009


Ég man eftir svolítið tvíræðri mynd úr Mogganum frá árinu 1993 þegar fyrsti McDonalds veitingastaðurinn opnaði á Íslandi.

Davíð Oddsson forsætisráðherra að bíta í fyrsta hamborgarann.

Þetta var frekar vandræðaleg mynd. Ég gat einhvern veginn ekki almennilega ímyndað mér að í nokkru öðru landi hefði nokkur annar forsætisráðherra opnað ameríska hamborgarabúllu með svona viðhöfn.

En látum svo vera.

Nú er McDonalds að loka, þó annar íslenskur staður komi reyndar í staðinn.

Orsökin er auðvitað Davíðshrunið. Eftir hrun krónunnar og aðrar þrengingar ræður fyrirtækið, sem rekið hefur McDonalds hér, ekki lengur við hráefniskaup erlendis frá.

Uppgangur og fall McDonalds á Íslandi er því óaflátanlega tengt hinum mikla og ástsæla leiðtoga.

Það er nú bara eins og það er. Best er líklega að draga ekki of víðtækar samfélagslegar ályktanir af hamborgarabransanum.

En hitt þætti mér gaman að vita hvort Morgunblaðið muni nú, í tilefni þessara stórmerku tímamóta, endurbirta myndina góðu af ritstjóra sínum að háma í sig hamborgarann.


- - - -

Eins og sést í athugasemd frá Páli Ásgeiri hér að neðan, þá misminnti mig um í hvaða blaði myndin góða birtist. Mjög skemmtileg mynd af þessum stórviðburði birtist í DV. Það stendur því ekki uppá Davíð Oddsson ritstjóra Morgunblaðsins að endurbirta myndina. En ætli Reynir Traustason ritstjóri DV láti nokkuð lengi hvetja sig til að birta þessa snilld?



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?